Hellulist er framsækið fyrirtæki sem var stofnað árið 2002 og hefur sannað sig sem traustur valkostur þegar gengið er til framkvæmda. Hellulist býður upp á örugga og faglega þjónustu fyrir verktaka, húsfélög og einstaklinga, þar sem einungis er notað fyrsta flokks efni. Stofnandinn er Gísli Elí Guðnason og hefur hann mikla þekkingu og reynslu á sviði hellulagninga.
Markmið fyrirtækisins er að veita góða og trausta þjónustu til viðskiptavina sinna. Við leggjum okkur fram við að vel sé að verkum staðið og að snyrti- og fagmennska sé í fyrirúmi.